laugardagur, október 11, 2008

Frúin í Hamborg

Mamma: Hvað keyptirðu fyrir peningana sem frúin í Hamborg gaf þér í gær?
Rósa: Ég keypti Ísland
Mamma: Ha? Allt Ísland?
Rósa: Allt Ísland
Mamma: Kostaði það ekki mikið?
Rósa: Ég veit það nú ekki. Ég er ekki búin að borga það.
Mamma Núnú?!?
Rósa: Ég átti ekki nógan pening.
Og þá gat mamma ekki annað en skellt upp úr...

Mamma var annars aðeins að útskýra fyrir mér að það væru ekki til eins miklir peningar á Íslandi lengur og sumir myndu kannski eiga svolítið erfitt af því mömmur þeirra og pabbar myndu missa vinnuna. Jújú, ég skildi það. Hafði samt ekki miklar áhyggjur, jú það er nú gott að eiga húsið sitt, en annars getur maður líka alveg bara byggt kofa og átt heima þar. Það myndi bara vera notalegt!

2 ummæli:

  1. Nafnlaus11:20 e.h.

    býsna raunsæ stúlka

    SvaraEyða
  2. Haha! Snilld!

    Já, ég held maður ætti að fara að herma eftir börnunum sínum og hætta að hafa áhyggjur af þessu. Bara eina spýtu í einu, og svoleiðis. ;-)

    SvaraEyða