þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Loksins

Eins og það er gaman að fara í sumarfrí, þá er eiginlega ennþá skemmtilegra að fara aftur í leikskólann. Ég er búin að vera að vakna seinna og seinna á morgnana, í gærmorgun vaknaði ég til dæmis klukkan hálftíu, skreið þá fram í sófa og kúrði undir sæng fyrir framan teiknimyndir. En í morgun stóð ég fullklædd og tilbúin við rúmið hjá mömmu klukkan átta og sagði, eigum við ekki bara að drífa okkur! Og það var sko ekki amalegt að mæta í leikskólann og fá þvílíku knúsin og hlýju móttökurnar, ég held að ég sé með bestu leikskólakennara í heimi.

1 ummæli:

  1. Þegar maður er alveg að fara að eignast systkin, er alveg bannað að skrifa bloggfærslu með fyrirsögninni "Loksins" nema einmitt það sé að gerast. Held alltaf að eitthvað sé að gerast þegar ég gái hingað.

    SvaraEyða