þriðjudagur, janúar 29, 2008

Fárveik

Nú er ég eins veik og ég hef nokkurn tímann orðið. Í gær var ég með mikla hálsbólgu og rúmlega 38 stiga hita, og í dag er ég búin að vera með 39-40 stiga hita og liggja í sófanum í allan dag. Mér fannst ósköp leiðinlegt í gær að vera lasin og vildi endilega fá að heimsækja vinkonu undir kvöldið þegar mér fór að líða aðeins betur, en í dag er ég bara búin að vera of lasin til að láta mér leiðast.

En það eru nú ekki tóm leiðindi samt, því á sunnudaginn átti stóri bróðir minn hvorki meira né minna en ellefu ára afmæli. Það var rosalega flott veisla fyrir bekkjarbræður hans með rjúkandi þurrís, gerviflugum, beinagrindum og Harry Potter bíói. Ég var mjög spennt fyrir því að vera með stóru strákunum, en svo á endanum var nú miklu skemmtilegra að leika bara við hana Hugrúnu bróðursystur mína. Ég hélt fyrst að hún væri ennþá svo mikið smábarn og vildi ekkert að hún væri að leika með Pet Shop dótið mitt og svoleiðis. En hún er ekkert smábarn lengur, orðin þriggja og hálfs árs og við getum sko vel leikið okkur saman.

5 ummæli:

  1. Nafnlaus1:20 e.h.

    bróðursystur? er þá GSM bróðurbróðir?

    SvaraEyða
  2. Jájá, hann er bróðurbróðir Hugrúnar, þau eru bróðursystkini og við Hugrún erum bróðursystur :-D

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus2:22 e.h.

    Ég hef greinilega ekki réttan orðaforða. En skv. þessu hlýtur GSM að líka að vera bróðurbróðir REM

    SvaraEyða
  4. Jájá, og líka föðursonur hennar ef út í það er farið :-Þ En ekki systurbróðir hennar því þá þyrfti hún að eiga systur.

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus5:10 e.h.

    Einmitt! Gott að ég hef skilið þetta rétt.

    SvaraEyða