Mamma var áðan inni í eldhúsi að taka til matinn. Ég var búin að vera að kveina úr hungri og alltaf sagði mamma að maturinn væri alveg að vera til. Á endanum kom ég inn í eldhús, stóð fyrir framan mömmu og hreyfði munninn og benti upp í mig. Mamma skildi ekkert hvað ég var að reyna að segja, svo ég fór inn í herbergi og kom aftur með blað sem á stóð, "ég get ekki talað af hungri". Mamma fór að skellihlæja, ég held hún hafi engan veginn skilið alvöru málsins! En sem betur fer fékk ég loksins að borða.
Æji ömurlegt! Mamma þín verður bara að fara að huxa upp einhverja skyndirétti fyrir þig :)
SvaraEyðaHún er nú meiri snillingurinn!
SvaraEyða