Það var eins gott að ég fór i búningaafmæli hjá Silju frænku minni í síðustu viku, ég er nefnilega lasin í dag og missti af öskuballinu í leikskólanum. Ég er samt ekkert mikið lasin, bara slöpp og með nokkrar kommur. Guðmundur Steinn er líka slappur, kvefaður og með hósta. Við erum orðin ósköp leið á þessu ástandi sem er búið að vera meira og minna frá áramótum, og erum farin að hlakka mikið til vorsins.
Ussuss. Óttalegt hor er þetta. vonandi fer það nú eitthvað að minnka með hækkandi sól.
SvaraEyða